Sleðahundar á norðurlandi

AIMG_9868
final_keppni
frett4
frett3
frett2
Biggi í flottum hóp

Latest

Sleðahundakeppni íslands lokið

Í dag fór fram fullorðinskeppnin í Sleðahundakeppni Íslands á vegum Icehusky, Draghundasports og IFSS. Keppnin var ræst á Hömrum og lá brautin um Hamrarsvæðið, niður í Kjarnaskóg og út í Naustaborgir. Alls tóku 5 lið þátt, tvö 6 hunda lið og þrjú 4 hunda lið. Keppnisaðstæður voru nokkuð erfiðar en hiti var við frostmark og blaut snjókoma sem gerði brautina þyngri yfirferðar, auk þess sem nokkuð var um klaka í brautinni sem reyndi mikið á hundana. Besta tímann átti Sigurður Birgir Baldursson en í liði hans voru 4 grænlenskir sleðahundar.

Úrslit og Tímar:

6 Hundar:
1. Sæti – Claire Thuilliez
2. Sæti – Birgir Hólm Þórhallsson

4 Hundar:
1. Sæti – Sigurður Birgir Baldvinsson
2. Sæti – Haraldur Ólafsson
3. Sæti – Pall Tryggvi Karlsson

Við Þökkum öllum sem tóku þátt og hjálpuðu til við keppnina kærlega fyrir allt, einnig þökkum við styrktaraðilum kærlega fyrir veittan stuðning!

Myndir frá mótinu eru væntanlegar inn á síðuna á sunnudag/mánudag.

F.h IceHusky
Helgi Steinar Halldórsson ( helgi hja icehusky.is )

Flottir keppendur!

Sleðahundakeppni íslands helgina 20-21 jan – BREYTT STAÐSETNING

Keppnin mun fara fram á Hömrum / Kjarnaskógi í stað Vaðlaheiðarinnar.

Allar nánari upplýsingar hér

Sleðahundamót Íslands dagana 21-22 Janúar 2012

Sleðahundakeppni Íslands 20-21 Janúar 2012

Icehusky hefur ákveðið að halda sleðakeppni í samvinnu við Draghundasport Íslands og verður hún haldin 20-21 janúar 2012.
Keppnin verður haldin á laugardeginum í Vaðlaheiði á norðurlandi beint á móti Akureyri Keppt verður í 2 x 20 km. og það verða tveir flokkar: 4 og 6 hundar. Svo verður barnabraut sem verður u.þ.b. 500m á föstudeginum.þar sem krakkar keppa með einn og tvo hunda. Í barnakeppninni eru þrír flokkar og verður þeim skipt svona niður:
Barna Musher (6-7-8 ára) 1 hundur
Krakka Musher (9-10-11 ára) 1 hundur
Unglinga Musher (12-13-14 ára) 2 hundar ( 1 km)

Keppnisgjaldið er 2000 kr. og greiðist við skráningu.
Síðasti dagur skráningar er 1. janúar 2012
Keppnisgjaldið er 500 kr fyrir börn

Sleðahundakeppnin á Icehusky.is 

Sleðahundakeppnin á Facebook

Stalinskaya vodka auglýsing

Strákarnir okkar voru notaðir í stalinskaya vodka auglýsingu, notast var við hunda frá okkur ásamt fleirum, Halli var lék musherinn sem sést í auglýsingunni allt þangað til hann tekur af sér snjógleraugun.. – Bara geggjað! Auglýsinguna má sjá hér :

Flottu móti lokið

Icehusky mótinu er nú lokið, úrslitin eru væntanlega.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Helga Steinar og Pétur skarp með hundana sýna þá Neró og Tý.

Biggi vann sleðahundakeppnina

Já það dró til tíðinda í sleðahundaheiminum þegar Birgir Hólm gerði sér lítið fyrir og vann fyrsta Icehusky mótið. Hann ásamt, Dreka, Neró, Tríton og Tý komu fyrstir í mark og fengu propac í verðlaun!