Sleðahundar á norðurlandi

Sleðahundakeppni íslands lokið

Í dag fór fram fullorðinskeppnin í Sleðahundakeppni Íslands á vegum Icehusky, Draghundasports og IFSS. Keppnin var ræst á Hömrum og lá brautin um Hamrarsvæðið, niður í Kjarnaskóg og út í Naustaborgir. Alls tóku 5 lið þátt, tvö 6 hunda lið og þrjú 4 hunda lið. Keppnisaðstæður voru nokkuð erfiðar en hiti var við frostmark og blaut snjókoma sem gerði brautina þyngri yfirferðar, auk þess sem nokkuð var um klaka í brautinni sem reyndi mikið á hundana. Besta tímann átti Sigurður Birgir Baldursson en í liði hans voru 4 grænlenskir sleðahundar.

Úrslit og Tímar:

6 Hundar:
1. Sæti – Claire Thuilliez
2. Sæti – Birgir Hólm Þórhallsson

4 Hundar:
1. Sæti – Sigurður Birgir Baldvinsson
2. Sæti – Haraldur Ólafsson
3. Sæti – Pall Tryggvi Karlsson

Við Þökkum öllum sem tóku þátt og hjálpuðu til við keppnina kærlega fyrir allt, einnig þökkum við styrktaraðilum kærlega fyrir veittan stuðning!

Myndir frá mótinu eru væntanlegar inn á síðuna á sunnudag/mánudag.

F.h IceHusky
Helgi Steinar Halldórsson ( helgi hja icehusky.is )

Flottir keppendur!

Comments are closed.